Hvalaskoðun frá Árskógssandi
Komdu með okkur í hvalaskoðun frá sjávarþorpinu Árskógssandi, aðeins 30 mínútna akstur frá Akureyri.
Njóttu þess að sigla um Eyjafjörðinn á fallegum íslenskum eikarbát og upplifðu einstakt tækifæri til að kynnast hinum stórfenglegu hvölum sem þar dvelja. Áhöfnin okkar býr yfir mikilli þekkingu á náttúru og dýralífi fjarðarins og munu miðla áhugaverðum fróðleik til farþega á meðan ferðinni stendur.
Hnúfubakar í Eyjafirði
Yfir sumartímann hafa hinir stórskemmtilegu hnúfubakar gert sig heimakomna í Eyjafirði og eru afar algeng sjón í ferðum okkar auk þess láta hrefnur, hnýðingar og hnísur sjá sig reglulega!
Heitt kakó og hlýir gallar
Við leggjum mikið upp úr þægindum farþega og bjóðum því upp á hlýja galla fyrir alla um borð. Á heimleiðinni er svo boðið upp á rjúkandi heitan kakóbolla ásamt nýbökuðum kanilsnúðum.
Velkomin á Árskógssand
Árskógssandur er heillandi sjávarþorp staðsett í Eyjafirði með aðeins um 100 íbúa. Þar má finna stórfenglegt útsýni yfir til Hríseyjar og út Eyjafjörðinn sem svíkur engan. Á Árskógssandi má finna Bruggsmiðjuna Kalda ásamt hinum einstöku Bjórböðum sem notið hafa mikilla vinsælda síðustu ár. Bjórböðin bjóða upp á upplifun sem er engri lík en eins og nafnið gefur til kynna er þar í boði að fara í bjórbað, heita útipotta og gufubað. Við böðin stendur svo Ströndin Bistro sem býður upp á frábæran mat og stórbrotið útsýni út Eyjafjörðinn. Hríseyjarferjan Sævar gengur frá Árskógssandi daglega á tveggja tíma fresti en það tekur einungis 15 mínútur að sigla frá Árskógssandi til Hríseyjar. Hrísey er sannkölluð náttúruperla sem allir ættu að heimsækja. Í Hrísey má finna sundlaug, veitingastað, verslun og söfn ásamt fjölbreyttum gönguleiðum um eyjuna.
Bóka ferð
Frí afbókun allt að sólarhring fyrir ferð
Sveigjanleiki með breytingar á bókun
Borgaðu núna eða þegar þú mætir
2,5 klukkustundir (u.þ.b.)
1. febrúar – 15. desember
Árskógssandur
Verð
11.990 kr. fullorðnir
6.000 kr. 7-15 ára
FRÍTT fyrir 6 ára og yngri
(Öll verð eru með 11% virðisaukaskatti)
Innifalið
- Heitt kakó og kanilsnúðar
- Full leiðsögn
- Hlýir heilgallar
- Teppi og regnkápur eftir aðstæðum
Aðgangsmiði Norðursiglingar veitir þér eftirfarandi afslætti á Árskógssandi:
- 10% afsláttur í Bjórböðin og af bjórsápum frá Bjórböðunum.
- 10% afsláttur af matseðli hjá Ströndin Bistro í Bjórböðunum. Vinsamlegast sýnið brottfararspjald Norðursiglingar við pöntun.
- 10% afsláttur á bjórum frá Bruggsmiðjunni Kalda.
Einnig færir aðgangsmiðinn þér eftirfarandi afslætti á Hjalteyri og Húsavík:
- 10% afsláttur á veitingastaðinn Eyri Hjalteyri
- 20% afsláttur í Hvalasafnið á Húsavík
- 10% afsláttur á veitingastaðinn Gamla Bauk Húsavík
- 10% afsláttur í Sjóböðin Húsavík
- 10% afsláttur á Húsavík öl